HVAÐ ER Í BOÐI?
Í markþjálfun eru endalausir möguleikar og mismunandi
hvað hentar hverjum.
Ágústa Margrét markþjálfi bíður
upp á sérsniðið fyrirkomulag
fyrir fjölbreyttan markhóp.
ÁGÚSTA MARGRÉT
MARKÞJÁLFI
"Ég hef margoft misst sjónar af raunverulegum
gildum mínum, markmiðum og draumum.
Ég hef staðið á krossgötum og verið á villigötum
oftar en ég get talið upp eða hef kært mig um,
en hvert einasta skref sem ég hef tekið hefur
komið mér á þann stað sem ég er í dag.
Áhugi minn á markþjálfun og að vinna með öðru fólki á jákvæðan og uppbyggilegan hátt hefur vaxið jafnt og þétt
samhliða minni sjálfsvinnu og leiddi sá áhugi mig til náms
og starfa sem markþjálfi, sem er mjög ólíkt öllu öðru
sem ég hef áður fengist við en ég trúi að öll sú reynsla
sem ég bý yfir nýtist mér vel á þessum vettvangi"
