top of page

HVAÐ ER Í BOÐI?

Markþjálfun, fyrirlestrar, námskeið og ráðgjöf fyrir stjórnendur, starfsfólk, nemendur og foreldra.

FYRIR NEMENDUR:

  • Hópmarkþjálfun og einstaklingsmarkþjálfun fyrir nemendur/ bekki/ árganga/ lið og teymi.

  • Sérsniðin námskeið út frá þörfum hvers og eins skóla/ bekkjar/ árgangs og/ eða einstaklings.

  • Sérhæfð námskeið eins og hér segir:

Besta útgáfan af mér-

Nemendur kafa í sjálft sig og skoða hvar þau hafa góða færni og hvar er skortur á færni og velta fyrir sér spurningum eins og:

  • Hvað get ég gert til að verða besta útgáfan af sjálfri/um mér?

  • Hvernig manneskja er ég/ vil ég vera?

  • Hvað hindrar mig í að upplifa drauma mina?

  • Hvað veitir mér gleði?

  • Hvað finnst mér erfitt og fleira.

Nemendur öðlast betri sjálfsþekkingu, sjálfstraust og skýrari sýn.

 

Áhrifarík framkoma og góð samskipti-

Nemendur fá fræðslu og æfingu í framkomu og ræðumennsku sem nýtist td. á samfélagsmiðlum, á skemmtunum, í vloggum og videoum, í atvinnuviðtölum og fleira.

  • Nemendur búa sér til ferilskrá með áherslu á styrkleika sína, reynslu, þekkingu og sérstöðu.

  • Nemendur setja gögn í skjal sem þau geta notað með umskóknum til náms og vinnu.

  • Nemendur æfa sig í að kynna sig út frá þessum upplýsingum á sinn hátt, sumir gætu sett þetta upp sem uppistand aðrir sem samtal eða ræðu.

Nemendur öðlast færni og öryggi í að koma fram og kynna sjálfan sig sem mikilvægan einstakling í heiminum- sem á sitt pláss og sinn rétt á að skína á sínum forsendum.

 

Markþjálfun-

Nemendur fá grunnþekkingu í markþjálfun, áhrifaríkum samskiptaleiðum, markmiðasetningu og fleiru.

  • Markþjálfun er tækni sem fólk getur nýtt sér í átt að persónulegum bótum og sigrum, sem og í til betri og hreinni samskipta- án drama, leiðinda og vanlíðunnar.

  • Markþjálfun Life Coaching („lífs þjálfun“) er vinsælt sjálfhsjálpartól um allan heim.

Nemendur öðlast sjálfstraust, skýrari sýn, færni til að eiga hreinni og beinni samskipti, getu til að setja mörk og fylgja hjartanu.

FYRIR STJÓRNENDUR OG STARFSFÓLK SKÓLA/

ÍÞRÓTTAFÉLAGA OG TÓMSTUNDASTARFS:

  • Hópmarkþjálfun og einstaklingsmarkþjálfun fyrir stjórnendur menntastofnanna, teymisstjóra, kennara, þjálfara og fleira.

  • Sérsniðin námskeið út frá þörfum.

  • Sérhæfð námskeið.

Meðal þess sem greint er í gegnum markþjálfasamtöl, kannanir og ýmislegt öðru er:

  • Hverjar eru þarfir og langanir hvers einstaklings innan hópsins?

  • Hverjar eru þarfir og langanir hópsins í heild?

  • Hver eru markmiðin?

  • Hvað þarf að gerast til að ná markmiðum?

Ávinningur er:

  • meiri samheldni og samvirkni

  • hreinni og beinni samskipti

  • skýrari sýn

  • aukið skipulag

  • aukin tímastjórnun

  • einföldun og fleira sem kemur rekstri/ verkefnum áfram

  • Styrkleikar, þarfir og langanir hvers og eins fá betur að njóta sín sem skilar betri árangri fyrir heildina.

Meðal sérhæfðra námskeiða:

Markþjálfun og áhrifarík samskipti-

Þátttakendur fá grunnþekkingu í markþjálfun, áhrifaríkum samskiptaleiðum og samvirkni.

Þátttakendur fá:

  • tækifæri til að samstilla sig

  • segja hug sinn og heyra sjónarhorn annarra

  • hugmyndir af breyttum og bættum samskiptaháttum sem nýtist í lífi og starfi

  • öðlast aukna færni í virkri hlustun, endurspeglun og áhrifamiklum spurningum sem leiða til meiri sjálfstrausts og ábyrgðar allra hlutaðeigandi.

FYRIR FORELDRA Í GEGNUM SKÓLAKERFIÐ:

  • Hópmarkþjálfun fyrir foreldra og forráðamenn með eða án starsmanna skóla/ íþróttafélags eða tómstundastarfs.

  • Stýrð markþjálfasamtöl milli foreldra og starfsmanna skólastofnanna/ íþróttafélaga og tómstundastarfs.

  • Sérsniðin námskeið út frá þörfum.

  • Sérhæfð námskeið.

Ávinningur er:

  • meiri samheldni og samvirkni

  • hreinni og beinni samskipti

  • skýrari sýn og samtakamáttur

Meðal sérhæfðra námskeiða:

Markþjálfun og áhrifarík samskipti-​​

Þátttakendur fá grunnþekkingu í markþjálfun, áhrifaríkum samskiptaleiðum og samvirkni.

Þátttakendur fá:

  • tækifæri til að samstilla sig

  • segja hug sinn og heyra sjónarhorn annarra

  • hugmyndir af breyttum og bættum samskiptaháttum sem nýtist í lífi og starfi

  • öðlast aukna færni í virkri hlustun, endurspeglun og áhrifamiklum spurningum sem leiða til meiri sjálfstrausts og ábyrgðar allra hlutaðeigandi.

bottom of page