top of page
1556-83_edited.jpg

Að þekkja þarfir, sínar langanir, væntingar og vonir er lykill af betra lífi. 

 

Að vera með skýr gildi, skýra sýn og ákveðna stefnu að raunverulegum

markmiðum og framfylgja þeirri stefnu að heilindum, hugsjónum og

heilbrigði veitir fólki frelsi, tíma, orku, hugarró og jafnvægi.

 

Ég hef margoft misst sjónar af raunverulegum

gildum mínum, markmiðum og draumum. 

 

Ég hef týnt þörfum mínum og löngunum í amstri dagsins,

lúffað þeim fyrir þörfum og löngunum annarra,

og hjakkast áfram af gömlum venjum.

Ég hef staðið á krossgötum og verið á villigötum oftar en ég get talið upp

eða hef kært mig um, en hvert einasta skref sem ég hef tekið hefur

komið mér á þann stað sem ég er í dag.

 

Áhugi minn á markþjálfun og að vinna með öðru fólki á jákvæðan og

uppbyggilegan hátt hefur vaxið jafnt og þétt samhliða minni sjálfsvinnu

og leiddi sá áhugi mig til náms og starfa sem markþjálfi, sem er mjög ólíkt

öllu öðru sem ég hef áður fengist við og ég trúi að öll sú reynsla

sem ég bý yfir nýtist mér vel á þessum vettvangi.

 

Í byrjun árs 2017 urðu kaflaskil hjá mér þegar ég gerði mér grein fyrir að ég

væri ekki að upplifa það sem ég hafði alltaf ætlað mér, td. að ferðast með

börnin mín, læra og upplifa nýja hluti og vera í mínu besta mögulega formi.

Ómeðvitað var ég sjálf búin að koma upp allskonar hindrunum og ég

flaut einhvernveginn bara með straumnum ómeðvituð og ósátt við ýmislegt.

 

Ég ákvað að gera breytingar og ég gerði þær.

Ef ég get það- þá getur þú það

 

Það er einlægur áhugi minn að aðstoða og hvetja annað fólk

áfram í sinni vinnu að sínum markmiðum út frá sínum þörfum,

löngunum og lífsgildum, hvort sem þau snúa að persónulega

lífinu, starfsframa, menntun eða öðru.

2_edited.png
bottom of page